27.06.2008 17:01:21 / disa18
Life is beautiful
Það er svo margt að gerast. Svo margt að fara að gerast.
Eftir tvær vikur flyt ég heim til Íslands eftir tæplega fjögurra ára fjarveru. Ég hlakka rosalega til, held ég sé ekkert alveg búin að fatta þetta. Ísland aftur. Vá hvað ég á eftir að sakna Danmerkur. Næsta land sem ég ætla að yfirtaka er Skotland. Eftir ca. 5-7 ár. Gott plan.
Sumarið fer í að verða feitari og vinna á meðgöngudeildinni á LSH. Passa óléttar sætar konur. Það verður fjör.
Um miðjan ágúst fer svo barnið mitt í.... í SKÓLA! Ó minn bobbí. Ég trúi þessu nú eiginlega ekki. En sé það á hæðinni á honum og hversu góður hann er í að rífa kjaft að hann er tilbúinn að byrja í skóla. Á tveimur dögum tókst dýrinu að brjóta rúðu (viljandi) í leikskólanum og fá gat á hausinn - held að hann nenni ekki þessum leikskóla lengur, eða þá er hann í uppreisn útaf flutningum. Hann var að klára straffið í dag (fyrir rúðubrotið) og er að velta fyrir sér hvernig við eigum að borga fyrir ósköpin.
Um miðjan september lætur svo barnið, sem sparkar í þvagblöðruna mína daginn út og daignn inn, sjá sig. Ég er svo spennt að ég á engin orð til að lýsa því. Þetta verður líka mjög spes fyrir mig, eftir allar þær fæðingar sem ég hef upplifað. Ég hlakka svo til að ég get eiginlega ekki beðið - en finnst samt líka gaman að vera ólétt svo ég lifi þetta af.
That´s it held ég.
Sjáumst eftir nokkra daga!