If you think I am strange - you should meet my siblings!

Velkomin í unaðsheim Dísu

07.11.2008 00:52:58 / disa18

Garðar Darri ofurgrínisti

Hann Garðar Darri er grínisti, eins og ég hef stundum sagt.  Hann kann að svara fyrir sig og lætur engan vaða yfir sig.  Er alltof löt að skrifa niður kommentin hans, en hér koma þrjú:

Þegar að litla systir hans fæddist var hann rosalega spenntur að hitta okkur.  Vaknaði eeeeeldsnemma um morguninn og vildi fara að hitta litlu STRAX.  Þegar hann kom upp á spítala reif hann upp hurðina á fæðingarherberginu og rauk inn, kíkti aðeins á systur sína og sagði svo "er hún nokkuð með ofnæmi fyrir hundum??!"...

Í gær þegar ég var að reyna að fá Garðar Darra til að lesa í lestrarbókinni (sem hann sýnir svona misjafnlega mikinn áhuga á), sagði hann eftir langar þrætur: "mamma, ég sver það, ef þú lætur mig lesa í þessari bók, þá æli ég á bókina!"..

Áðan var Halli ekki heima og ég, Gæi og Arndís Magna ein heima.  Ég var í sturtu og Arndís Magna var sofandi..svo heyri ég að hún vaknar og fer að væla og bið því Gæja að hjálpa mér og tala aðeins við litlu systur sína.  Hann neitar mér og segist vera alveg gjörsamlega upptekinn í tölvunni (hans orð) og geti bara ekki sinnt "þessu barni".  Ég reyni að tala hann til, en að endingu sagði hann: "Mamma, er þetta mitt barn.. NEI... þú átt þetta barn og þú skalt passa það!"...

Hann er alltof fyndinn þessi gormur minn.  Vildi bara skrifa til að sýna smá lit - þar sem ég er nú í fæðingarorlofi!

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.10.2008 20:35:12 / disa18

Jiminn hvað ég elska færeyinga..

" Vinarkveðja frá Færeyjum
Lögmaður Færeyja, Kaj Leo Johannesen, hefur sent Geir H. Haarde forsætisráðherra bréf þar sem hann lætur í ljós samhug með Íslendingum vegna bankakreppunnar.

„Í Færeyjum fylgjumst við vel með því sem er að gerast á Íslandi. Sem þjóð eruð þið nákomin okkur. Við gleðjumst með ykkur þegar vel gengur og samhryggjumst ykkur þegar illa gengur,“ segir í bréfinu.

Þess megnug að leysa vandann

Johannesen kveðst harma hversu hart alþjóðlega fjármálakreppan hefur leikið Íslendinga. „Þið hafið áður sýnt að þið getið sigrast á erfiðleikum sem þjóðin hefur orðið fyrir. Við vitum að það býr mikill styrkur í fólkinu og erum sannfærð um að þið eruð þess megnug að leysa vandann. Ég vil að þið vitið að við erum alltaf tilbúin til að rétta ykkur vinarhönd. Landstjórn Færeyja sendir íslensku þjóðinni bestu óskir um bjartari tíð.“

Kaj Leo Johannesen er leiðtogi Sambandsflokksins og varð lögmaður Færeyja í liðnum mánuði þegar hann tók við af Jóannesi Eidesgaard, leiðtoga Jafnaðarflokksins. Johannesen er 44 ára gamall og hefur setið á færeyska lögþinginu frá árinu 2001."

Tekið af mbl.is.

Aldrei bregðast færeyingar, mér finnst þeir sætir.  Annað er danir og bretar, þeir eru ljótir.


» 2 hafa sagt sína skoðun

19.09.2008 22:26:27 / disa18

Lítil eskimóadama er fædd

Fallegasta stelpa norðan Ástralíu er fædd - hún er svo dásamlega dásamleg.  Er gjörsamlega hugfangin af þessari hárprúðu prinsessu sem er einhversstaðar mitt á milli eskimóa og lukkutrölls.  Hún er svo vær og góð og sefur bara og drekkur.  Stóri bróðirinn er rosalega ánægður með hana og vill svæfa hana á hverjum degi - hann hins vegar er mjög pirraður út í alla aðra... svona pínu erfitt að verða stóri bróðir, þó maður elski systur sína mikið.

Hérna er ungfrú yndisfríð:

http://photos-909.ll.facebook.com/photos-ll-sf2p/v329/1/81/530305909/n530305909_1273791_43.jpg
Kúrandi um miðja nótt!

http://photos-c.ak.facebook.com/photos-ak-sf2p/v329/1/81/530305909/n530305909_1268882_7415.jpg

Þarna er hún nýfædd og ennþá smá bólgin í framan...

Fæðingin gekk vel, hún var fædd 45 mínútum eftir fyrsta verk.. frekar hröð fæðing, enda kallar Halli hana miss FEDEX.. haha.  Dama á þvílíkri hraðferð.

Vá hvað ég hlýt að hafa verið frábær í fyrra lífi fyrst ég er svona heppin í þessu.  Tvö yndislega falleg börn og besta mann í heimi sem studdi mig 150% í gegnum allt ferlið - algjörlega bestur.

Ég er sko með hormóna á fullu og þvílíkt dramatísk - rosa sykursætt blogg.  En það má þegar maður er nýbökuð mamma...

Dísa stolta stolta stelpu og strákamamma!

» 9 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 16:54:37 / disa18

Jáááá SÆLL!

Eigum við að ræða það eitthvað?!  Ég komin til Íslands og Garðar Darri ofurgrallari byrjaður í skólanum.  Ó hvað ég elska Ísland mikið.  Ég er svo sátt við að vera komin heim og Garðar Darri er of spenntur fyrir skólanum.  Það er ekki töff að vekja mig kl. 6 á morgnanna til að tilkynna mér að hann sé að fara í skólann.  Ég segi það og skrifa; ekki töff.

Hann er hress á kantinum og getur ekki beðið eftir litlu systur sinni.  Biður hana fallega á hverjum kvöldi að koma daginn eftir.  En hún hlýðir engu frekar en hann.  Hann knúsar og kyssir bumbuna og segir henni frá atburðum dagsins - hann er nú algjör rjómabolla stundum.

Ég:  Ég er feitari en Keikó og líður eins og ég sé með körfubolta í klofinu.  Er með eilífðartúrverki, þó ég sé ekki einu sinni á túr.  Þarf alltaf að pissa, þó ég þurfi ekki einu sinni að pissa.  Með magasýrur alla leið upp í kok og get þar af leiðandi ekki legið (sofið).  Rest er ekki prenthæft.  Bara for crying out loud, nenniði að knúsa næstu óléttu konu að ykkur og segja henni að þið finnið til með henni.
Annars er ég bara hress.

Yfir í annað.  Nenni þið, lélegu ökumenn Íslands að selja bílinn ykkar og tala strætó.  Leiðkerfið er hér --> www.bus.is - þetta á örugglega við 75% Íslendinga. Plíís.

Keikó out!

» 9 hafa sagt sína skoðun

27.06.2008 17:01:21 / disa18

Life is beautiful

Það er svo margt að gerast.  Svo margt að fara að gerast. 

Eftir tvær vikur flyt ég heim til Íslands eftir tæplega fjögurra ára fjarveru.  Ég hlakka rosalega til, held ég sé ekkert alveg búin að fatta þetta.  Ísland aftur.  Vá hvað ég á eftir að sakna Danmerkur.  Næsta land sem ég ætla að yfirtaka er Skotland.  Eftir ca. 5-7 ár.  Gott plan.

Sumarið fer í að verða feitari og vinna á meðgöngudeildinni á LSH.  Passa óléttar sætar konur.  Það verður fjör.

Um miðjan ágúst fer svo barnið mitt í.... í SKÓLA!  Ó minn bobbí.  Ég trúi þessu nú eiginlega ekki.  En sé það á hæðinni á honum og hversu góður hann er í að rífa kjaft að hann er tilbúinn að byrja í skóla.  Á tveimur dögum tókst dýrinu að brjóta rúðu (viljandi) í leikskólanum og fá gat á hausinn - held að hann nenni ekki þessum leikskóla lengur, eða þá er hann í uppreisn útaf flutningum.  Hann var að klára straffið í dag (fyrir rúðubrotið) og er að velta fyrir sér hvernig við eigum að borga fyrir ósköpin.

Um miðjan september lætur svo barnið, sem sparkar í þvagblöðruna mína daginn út og daignn inn, sjá sig.  Ég er svo spennt að ég á engin orð til að lýsa því.  Þetta verður líka mjög spes fyrir mig, eftir allar þær fæðingar sem ég hef upplifað.  Ég hlakka svo til að ég get eiginlega ekki beðið - en finnst samt líka gaman að vera ólétt svo ég lifi þetta af.

That´s it held ég.
Sjáumst eftir nokkra daga!

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 12:35:06 / disa18

Af því mér leiðist...

1.  ERTU SKÍRÐ/UR Í HÖFUÐIÐ Á EINHVERJUM ? 
     Langalangömmu minni og líklega mömmu líka.

2. HVENÆR FÓRSTU SÍÐAST AÐ GRÁTA ?
    Áðan - hormónaflipp.  Fannst einhver mjög ósanngjarn - man ekki hver, né útaf hverju.

3. FINNST ÞÉR ÞÚ SKRIFA VEL ?
    Svona skrift á blað?  Nei.  Væri til í að skrifa betur.

5. ÁTTU BÖRN ? EF JÁ HVE MÖRG ?
    Já, Garðar Darra sem er rangskírður - því hann hefði átt að heita Emil og svo eitt fóstur í maga sem bráðum verður stúlkubarn.

6. EF ÞÚ VÆRIR EINHVER ANNAR EN ÞÚ ERT,VÆRIRÐU VINUR ÞINN ? 
    Efast um það.  Fer svo oft í taugarnar á mér.

7. NOTARÐU KALDHÆÐNI MIKIÐ ?
    Mmm held ekki - tek ekkert sérstaklega eftir því.

8. FÆRIRÐU Í TEYGJUSTÖKK ?   
    Aldrei.

9. HVAÐA MORGUNMATUR ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? 
    Æ, veit ekki.  Rúnstykki.  Cheerios.  Núna fæ ég mér yfirleitt appelsínu, gulrætur x 3 og hrökkkex + vítamín.
 

10. REIMARÐU FRÁ ÞEGAR ÞÚ FERÐ ÚR SKÓNUM ? 
      Aldrei.

11. TELURÐU ÞIG ANDLEGA STERKA ? 
       Æ. Þetta er svona spurning sem maður getur ekki svarað án þess að virka hrokafullur eða aumingi.  Ég er stundum andlega sterk, en oft er ég mikill aumingi sem get grenjað yfir öllu og vorkennt mér gríðarlega.  Oftast þegar ég þarf að vera það, þá er ég það.
 

12. HVERNIG ÍS ER Í UPPÁHALDI HJÁ ÞÉR ? 
      Hagamelsís.  Annaðhvort; ís í brauðformi með lakkrísdýfu og snikkers eða þeytingur með tvöföldum þrist og snikkers.  Gamli ísinn off kors.

13. HVAÐ ER ÞAÐ FYRSTA SEM ÞÚ TEKUR EFTIR Í FARI FÓLKS ?  
      Veit ekki.  Dæmi fólk yfirleitt fljótt og harkalega.  Minn helsti löstur.

14. RAUÐUR EÐA BLEIKUR VARALITUR ?
      Hvorugt.

15. HVAÐ MISLÍKAR ÞÉR MEST VIÐ SJÁLFAN ÞIG ? 
      Hvað ég get verið góð við sjálfan mig, hvað ég er hörð við sjálfan mig (veit andstæður), kröfurnar sem ég set á sjálfan mig og aðra, fljótfærni, skapbráð, hrokafull, á virkilega erfitt með að þykjast líka við fólk sem mér líkar bara ekki við.  Óþolinmæði.

16. HVAÐA MANNESKJU SAKNAR ÞÚ MEST ? 
      Líklega móðurömmu & afa.  Finnst leiðinlegt að hafa ekki kynnst þeim betur - enda svo stórglæsilegt fólk og heillandi.  Svo líka Bóa frænda - hann var yndislegur.  Svo mikill kærleiki í kringum hann.

17. VILTU AÐ ALLIR SEM LESA ÞETTA SVARI ÞESSUM LISTA ? 
     Bara ef það vill.

18. HVAÐA LIT AF BUXUM OG SKÓM ERTU Í NÚNA ?
      Er berfætt í afklipptum adidasbuxum.

19. HVAÐ VAR ÞAÐ SÍÐASTA SEM ÞÚ BORÐAÐIR ?
      Var að borða rúnstykki og diet kók.  Hollustuan alveg að fara með mig.

20. Á HVAÐ ERTU AÐ HLUSTA NÚNA ?  
      Barnaefnið sem Gæi er að horfa á.
 

21. EF ÞÚ VÆRIR LITUR, HVAÐA LITUR VÆRIR ÞÚ ? 
      Grænn. 

22. HVAÐA LYKT FINNST ÞÉR BEST ?  
      Akkúrat núna?  Bensínlykt, fjósalykt og lyktin af Halla.

23. VIÐ HVERN TALAÐIRÐU SÍÐAST Í SÍMA ?  
      Ragnheiði vinkonu.

24. LÍKAR ÞÉR VEL VIÐ ÞÁ MANNESKJU SEM SENDI ÞÉR ÞESSAR SPURNINGAR ?   
      Ég stal þessu af öðru bloggi.  Enginn sem sendi mér þetta.

25. UPPÁHALDSÍÞRÓTT SEM ÞÚ HORFIR Á ? 
      Fimleikar.  Handbolti.  Fótbolti. Frjálsar íþróttir.  Í þessari röð.

26. ÞINN HÁRALITUR ? 
      Gangstéttarlitur

27. AUGNLITUR ÞINN ? 
     Grænn

 28. NOTARÐU LINSLUR ?  
        Nei.

29. UPPÁHALDSMATUR ?  
      Sítrónukjúklingurinn hans Halla og SS pulsur auðvitað.

30. HRYLLINGSMYND EÐA GÓÐUR ENDIR?
      Ohh ég er svo mikil gelgja svo ég segi góður endir.

31. SÍÐASTA BÍÓMYND SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ ? 
     Maid of honor.  McDreamy er svolítið hot sko.

32. KNÚS OG KOSSAR EÐA LENGRA Á FYRSTA DEITI ?  
      Langbest að fara bara alla leið, þá veistu hvort hann er þess verður að hitta hann aftur eða ekki.  Eyðir ekki tíma í að byggja upp spennu sem eyðileggst svo þegar þú kemst að því að hann grenjar í lok samfara.

33. UPPÁHALDS EFTIRRÉTTUR ?

     Ís með sódavatni og appelsínuþykkni.

36. HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA ? 
     Obstetrik eftir Falck Larsen.  Mjög áhugaverð!

37. HVAÐA MYND ER Á MÚSAMOTTUNNI ÞINNI ? 
     Er ekki með músamottu.

38. Á HVAÐ HORFÐIRÐU Í SJÓNVARPINU Í GÆR ? 
      Horfði ekki á neitt í gær.  Spilaði kana í þrjá klukkutíma og enda í síðasta sæti.

 39. ROLLING STONES EÐA BÍTLARNIR ?  
       Ætla ekki að þykjast hafa vit á tónlist.  Fíla sum lög með Bítlunum og sum með Rolling Stones.  Ekkert uppáhaldsneitt.
 
 40. HVAÐ ER ÞAÐ LENGSTA SEM ÞÚ HEFUR FARIÐ FRÁ ÍSLANDI ?

       Færeyjar.  Eða.. er Danmörk lengra í burtu.  Þarf að fara að kíkja á kortið.

41. HVERJIR ERU ÞÍNIR HELSTU EIGINLEIKAR ? 
      Veit það ekki.  Er góð í sumu.  Oftast góð við þá sem ég elska.  Á auðvelt með að læra.  Er metnaðargjörn - svona þegar ég nenni.  Annars leyfi öðrum að dæma um þetta.

42. HVAR FÆDDISTU ? 
      Á skurðstofu á LSH eftir bráðakeisara.

43. SVÖR FRÁ HVERJUM ERTU SPENNTUST/SPENNTASTUR AÐ FÁ SJÁ ?
       Could not care less.


» 4 hafa sagt sína skoðun

29.05.2008 10:16:06 / disa18

Dásamlega ólétta líf

Það er ekkert dásamlegra en að finna lítið líf vaxa innra með sér.  Finna hvernig maginn stækkar og hvernig fóstrið sparkar.  Finna hvernig maður afmyndast í framan og fingurnir stækka og fæturnir verða eins og á sel.  Dásamlega fallega mannvera - ólétta ég.  Ennþá betra er að sofna kl 7 á kvöldin og vakna 8 sinnum um miðja nótt til að pissa.  Það bætir lífið líka heilmikið þegar maður vaknar eftir nóttina og líður eins og trukkur hafi keyrt beint yfir mann.  Þegar maður svo borðar og ætlar að slaka á eftir matinn finnur maður hvernig magasýrurnar klifra upp vélindað.  Dásamlega ólétta.

Mig langar alltaf að vera ólétt!

» 4 hafa sagt sína skoðun

07.05.2008 16:51:45 / disa18

Prump og piss og annað

Ég sver það.  Krakkarassgatið sem ég á.  Hann er alveg magnaður.  Kennararnir á leikskólanum eru alltaf að segja mér hvað hann er málglaður og sé endalaust að tala um hvað sé að gerast heima og svona (!!!).  Ég hef nú ekkert tekið þetta alvarlega - enda talar hann mikið og mér finnst það bara gaman (OFTAST!).

Nú ... í gær vorum við að passa þriggja ára dóttir vinkonu minnar.  Hann Garðar Darri setti sig strax í stellingar fyrir stóra bróður hlutverkið og stóð sig alveg glimrandi vel.  Hann kenndi dömunni París, að blása sápukúlur, að drepa kóngulær og sagði henni ævisögu sína.  Það sem hann sagði m.a.:

"Ved du hvad min mor har i maven?  Hun har min lille söster.  Min far elsker min mor så meget at han har puttet en baby ind i hendes mave"

"Engang så pruttede min mor så höjt at jeg blev bange" (Man sko ekki eftir þessu??!!) "og min far prutter hele tiden"

"Min far driller min mor hele tiden og mor kilder far"

"Nogen gange så kysser min mor og far rigtig meget"

"En gang da min mor skulle hoppe på trampolinet så tissede hun i bukserne" (Man EKKI eftir þessu GAAAAAAAAAARG!)

Hvar kaupir maður svona "tie stille" takka á börn?????? :^)  Það er alveg útséð að fólkið á leikskólanum veit meira um það hvað gerist heima hjá mér en ég sjálf.
Ef daman verður svona líka, þá get ég gleymt öllum leyndarmálum EVER.

Dísa prumpari og pissari

» 6 hafa sagt sína skoðun

30.04.2008 13:43:19 / disa18

www.kiva.org

Uppáhaldssíðan mín á netinu er www.kiva.org - þetta er ein sú besta hugmynd sem nokkur hefur fengið.  Þarna getur maður lánað pening til fólks í þróunarlöndum.  Ekki gefið - heldur lánað.  Það er ekkert að því að gefa - en þetta hjálpar fólki öðruvísi og maður sér hvert peningarnir fara.  Hjálpar fólki að hjálpa sér sjálft.

Ég er lánaði http://www.kiva.org/app.php?page=businesses&action=about&id=21322 þessari ágætu konu 25 dollara og í dag borgaði hún öllum allt tilbaka.  Mér líður svolítið eins og barninu mínu hafi vegnað vel - ég er mjög stolt af henni:P  Það sniðuga er líka, að núna átti ég svo 25 dollara inn á Kivareikningnum, sem ég get svo lánað áfram.  Þannig að í dag ákvað ég að lána http://www.kiva.org/app.php?page=businesses&action=about&id=47350 þessari ágætu konu.

Vá - mér finnst þetta svo frábær hugmynd og mæli með að þið prófið þetta!

Sónarfréttirnar eru þær að meirihluti "giskenda" hafði rétt fyrir sér.  Það er lítil dama á leiðinni.  Garðar Darri er búinn að jafna sig á vonbrigðunum og segir að hann fái þá allavega að eiga dótið sitt í friði;)

Knús,
Dísa

» 5 hafa sagt sína skoðun

16.04.2008 18:14:20 / disa18

Sónar

Ég tilvonandi ljósan, viðurkenni að vera fallinn í pitt hégómans og tækninnar.  Erum að fara í sónar eftir nokkra daga og ætlum að kíkja í pakkann.  Gerðum það ekki með GDH, en núna langar mig að prófa að kíkja.  Er vægast sagt mjög spennt... 8|:haha:

Akkúrat núna standa málin svona:
Dísa: Stelpa
Halli: Strákur
GDH: STRÁKUR!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! (annað kemur ekki til greina)

Fleiri sem vilja vera með?


» 12 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 11:06:39 / disa18

Kvenleikinn

Einu sinni var danskur/frakki sem sagði við mig (með mjög frönskum hreim): "Dísa, your so feminin".. og svo hló hann alveg brjálæðislega eftir á.  I got the point.  Ég er ekki kvenlegasta daman í flokknum, never been - never will be.  Ég hef gert margar heiðarlegar tilraunir; reynt að sitja með krosslagðar fætur, gengið í háhæluðum skóm, setið "pent", mála mig daglega.  Og þið vitið, svona dömuhluti.  Málið er bara að ég gleymi mér alltaf eftir svona klukkutíma.  T.d. að vera í stuttu pilsi - er algjört pain fyrir mig.  Áður en ég veit af, sit ég í indjánastellingu.. you know the rest.

Ég er löngu búin að játa mig sigraða í þessu.  Samt .. stundum fer ég í svona köst og ætla að vera þessi týpa - en svo gleymist það í öllum ókvenleikanum.  Ég meina, ég hef líka alveg gert tilraun með öfgarnar í hina áttina og mér fannst það eiginlega skemmtilegra.  T.d. þegar ég meiddist á hnéinu - þá ákvað ég að raka ekki vinstri legginn í 7 vikur.  Ég var í spelkum frá klofi og niður úr svo það sá þetta engin - nema ég og Halli.  Hægri fóturinn var náttúrulega bara brúnn og rakaður.  Vinstri var hvítur og loðin.  Very sexý.  Svona hlutir finnst mér ógeðslega fyndnir.  Svo ég ákvað að sýna stelpunum í fótboltanum þetta og varaði þær við og svona.  Svipurinn á þeim.. hann var OF fyndinn.  Þetta var svona eins og þegar strippari (karlkyns) er að fara úr síðustu flíkinni og allir eru öskrandi og brjálaði - svo fer hann úr... og allir þagna.  Þið vitið, svona vandræðalegt.  Þetta var nákvæmlega svona.  Þeim fannst fóturinn virkilega ógeðslegur.  Sögðu ekkert og bara svona byrjuðu að tala um eitthvað annað. 

Þá fór ég nú bara heim og rakaði dótið af  og setti brúnkukrem á vinstri fótinn.  Svo ég yrði tekin inn í samfélagið aftur.  Sem normal.  Samt nenni ég ekki alveg að halda mig inn í norminu. Oftast.


» 7 hafa sagt sína skoðun

19.03.2008 17:55:17 / disa18

Er ekki kominn tími til ad tvista?

Jæja.  Ég hef ekki skrifad í langan tíma.  Mjøg langan.  Margar ástædur.  Fullt ad gerast.  Ég vard veik.  Fór á spítala.  Fór heim aftur.  Var enntá veik.  Fór aftur uppá spítala.  Var løgd inn og bannad ad borda (/&/(&%(===)((/%&%¤##).  Var skorin upp og heilt líffæri fjarlægt!  Vaknadi og var illt.  Mátti ekki fá nein verkjalyf, eda okey, vildi ekki fá nein verkjalyf - útaf tessu (klárlega Halla ad kenna!) --> http://s3.frontur.com/img/2232/20080313125926_3.jpg  Mørgum finnst vont ad fá gallsteinakast og sýkingu í gallblødruna, en mér fannst tad ekkert mál (!!!!!!!!) vitandi tad ad tad gerist ekki aftur - ALDREI aftur. 

Næsta stóra mál á dagskrá er jú, ad vid erum ad flytja heim í sumar.  Tad er hreinlega of margar ástædur sem toga í okkur... svo vid veljum ad fara heim í kreppuna.   Ég hlakka megamikid til ad koma heim og njóta tess ad vera í kringum fólkid sem ég elska!:)

Jæja.  Ég skal taka mig á í blogginu.
Blessóklessó,
Dísa og baby Simpson.

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 15:29:46 / disa18

Ég á flippinu.

Um daginn var ég á vakt á fæðingarganginum.  Sá skólasystur mína og ákvað að klípa svona létt í rassinn á henni (af því að mér finnst svoleiðis svo fyndið;).  Svona 3 sekúndum eftir að ég var búin að klípa í rassinn á henni, fattaði ég að þetta var ekki skólasystir mín, heldur yfirljósmóðirin í Kolding.  Týpískt ég.  Mér varð skyndilega mjög heitt í andlitinu.

Dísa out


» 16 hafa sagt sína skoðun

01.01.2008 21:31:01 / disa18

Árið sem er að líða

Geðveikur titill.  Hvorki stolinn, né klisjukenndur.  Gott að byrja árið á einhverju svona fersku og hugmyndaríku.  Ég er hress. 

 

Hvað hef ég nú gert á þessu ágæta og tilbreytingasnauða ári?  Mest lítið svosem.  Ekki af svo miklu að taka.  En við skulum reyna.

 

Árið byrjaði á því að ég fyllti 25 ár, í hópi flestra bestu vinkvenna minna.  Það var gott og mjög gaman.  Hvorki sorglegt, né leiðinlegt.  Við djömmuðum, spjölluðum, djömmuðum, átum, djömmuðum og reyktum.  Mjög ánægulegt.  Við Árný einsettum okkur að byrja nýtt líf þ.10.janúar.  Skemmst er frá því að segja – að nýja lífið varð fjótt gamla lífið. Ég reyki ennþá, drekk ennþá, ét óhollt og hreyfi mig of lítið.  En það stendur til bóta.

 

Ég byrjaði aftur í bóklegu í skólanum í febrúar.  Það var fínt í byrjun, en fljótlega fékk ég leið – eins og ég geri nú svo oft.  Ég kláraði þó allt bóklega dæmið og það með þó nokkrum stæl.  Er svona semi sátt við sjálfan mig.  Maður getur jú alltaf gert betur, ekki satt? 

 

Já svo var ég á fullu í fótboltanum.  Alveg á leiðinni í landsliðið.  Vantaði bara herslumuninn.  Hvað gerist svo  - Dísa rífur liðband.  Dísa er spassi.  Dísa heldur að hún sé ennþá 17 ára.  Hverjum var þetta að kenna?  Dísu sjálfri.  Vei.  Jájá gott og blessað.  Ég var sem sagt á hækjum í 6 vikur (okey tók þær reyndar af eftir 4 vikur og sé mikið eftir því..) og var orðin frekar pirruð á þessu drasli. 

 

Þarna mitt í öllu þessu datt fannst Halla ég orðin eitthvað pirrandi og ákvað að fara til Íslands og skilja mig eftir ALEINA.  Það var fyndið – því ég er mjög ósjálfbjarga og hvað þá þegar það vantar á mig annan fótinn.  En það gekk allt saman og það var yndislegt að koma Halla á óvart á Kastrup.

 

Fljótlega skelltum við fjöllan okkur í míní heimsreisu.  Danmörk – Færeyjar – Ísland.  Kalt í Færeyjum maður.  Erfitt að sofa í tjaldi – maður er orðin svo mikið borgarbarn.  Norræna var fín – en ekkert svona sem ég nenni nema einu sinni á ævinni.  Varð frekar sjóveik á milli Fær-Ísl.  Svo kom ég til Íslands.  Æjj það er alltaf svo gott að koma heim.  Við lentum samt á Seyðisfirði, þar sem við þekkjum engan.  Ég og Gæi röltum bara í sjoppuna og fengum okkur SS pylsu og kókómjólk.  Ekki slæmt;)  Það var æði.  Ísland var mjög almennilegt við okkur og það var mjög gott veður næstum allt sumarið.  Var að vinna á sængurkvennaganginum á LSH og það gekk mjög vel og var mjög gaman.  Ég náði að eyða tíma með vinum mínum, fór á ættarmót, naut góða veðursins og gifta eina af bestu vinkonum mínum.  Það var fallegt og dásamlegt.

 

September, október og nóvember voru erfiðir mánuðir.  Mér leið ekki vel og langaði til Íslands.  Var meira að segja búin að ákveða að flytja heim.  Hætti við.  Ég var að díla við margt og öll prófin bættust í hópinn og svo heimþráin.  Það gerði það að verkum að ég var frekar leiðinleg þessa mánuði og nennti ekki mörgu.  Ég sá þó að mér og í byrjun nóvember fór mér að líða betur.

 

Í byrjun desember byrjaði ég aftur í verknámi og er búin að vera að taka á móti börnum allan desember.  Það hefur gengið ágætlega.  En þetta er mjög krefjandi og ekki alltaf auðvelt.  Stundum veltir maður því fyrir sér hvort maður sé nógu sterkur í þetta.  Eftir tveggja ára hugsun, er ég ekki ennþá viss.  En ég held það.  Kannski verð ég aldrei viss.

 

Mamma og Einar komu um jólin og það var æði.  Áramótin voru leti og leti og leti.

Á morgun verð ég svo árinu eldri.  Veit ekki hvort ég sé tilbúin í það sko.

 

Dísa


» 9 hafa sagt sína skoðun

22.12.2007 09:04:30 / disa18

Jólakveðja!

Elsku fjölskylda, vinir og aðrir slugsar!  Ég náði ekki að senda jólakort í ár svo mig langar að senda jólakveðjuna hérna!  Það er glatað - I know, en ég hef bara ekki haft tíma.

Mig langar að óska ykkur öllum, nær og fjær, stórkostlegra jóla.  Vona að þið munuð borða yfir ykkur, lesa yfir ykkur og slaka mikið á.  Það ætla ég að gera.  Takk fyrir allt á síðastliðnu ári - margar ógleymanlegar minningar sem ég mun varðveita vel.  Vona að nýja árið verið ánægjulegt og farsælt fyrir ykkur (OG MIG!).

MERRY CHRISTMAS AND A HAPPY NEW YEAR!8)

Dísa litla jólabarn


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 16
Klukkan
Fjølskylda og vinir
Fótboltinn minn